Alfons lék sinn fyrsta leik – Willum ekki með

Alfons Sampsted.
Alfons Sampsted. Ljósmynd/Birmingham

Landsliðsmaðurinn Alfons Sampsted kom inn á í sínum fyrsta leik fyrir Birmingham í 1:0-útisigri á Charlton í enska deildabikarnum í knattspyrnu í kvöld. 

Alfons kom inn á 69. mínútu en bæði Birmingham og Charlton leika í ensku C-deildinni. 

Þá var Willum Þór Willumsson ekki í leikmannahópi Birmingham en hann fór meiddur af velli í fyrsta leik liðsins í C-deildinni um síðustu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert