Ekki á förum frá Liverpool

Luis Díaz í leik með Liverpool á dögunum.
Luis Díaz í leik með Liverpool á dögunum. AFP/Peter Powell

Ekkert félag hefur borið víurnar í kólumbíska knattspyrnumanninn Luis Díaz, kantmann Liverpool, í sumar.

Háværir orðrómar voru á samfélagsmiðlum í morgun um að Englandsmeistarar Manchester City væru búnir að bjóða í Díaz og að hann hefði þegar samþykkt að ganga til liðs við nágrannana.

James Pearce hjá The Athletic, sem er vel tengdur Liverpool, leiðrétti þennan orðróm hins vegar snarlega á X-aðgangi sínum og greindi frá því að ekkert tilboð hefði borist í Díaz í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert