Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson og liðsfélagar hans í Blackburn unnu C-deildarlið Stockport, 6:1, á útivelli í enska deildabikarnum í kvöld.
Arnór lék allan leikinn fyrir B-deildarlið Blackburn og lagði upp fyrsta mark liðsins.
Þá kom Stefán Teitur Þórðarson inn á fyrir Preston í sigri liðsins á Sunderland, 2:0, í deildabikarnum.
Jason Daði Svanþórsson var ekki í leikmannahópi Grimsby sem vann Bradford á heimavelli í vítaspyrnukeppni.