Manchester United hefur staðfest komu hollenska knattspyrnumannsins Matthjis de Ligt.
De Ligt kemur til United frá Bayern München fyrir 43 milljónir punda en hann er 25 ára gamall miðvörður.
De Ligt lék afar vel með Ajax í liði Eriks ten Hag sem komst í undanúrslit Meistaradeildarinnar árið 2019. Síðan þá hefur hann spilað með Juventus og Bayern en ekki náð að festa sig í sessi.
Welkom, Matthijs! 🤝
— Manchester United (@ManUtd) August 13, 2024
We are delighted to announce the signing of @MdeLigt_04 from Bayern Munich ✍️ #MUFC