Enska félagið kaupir Brasilíumann á metfé

Evanilson með boltann í leik gegn Úrúgvæ.
Evanilson með boltann í leik gegn Úrúgvæ. AFP/Robyn Beck

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Evanilson er á leiðinni til Bournemouth frá Porto í Portúgal. 

Enskir miðlar greina frá en Bournemouth mun greiða Porto upp í 47 milljónir evra fyrir Brasilíumanninn sem kemur í stað Dominic Solanke en hann fór til Tottenham fyrr í sumar. 

Evanilson læek 154 leiki fyrir Porto á fjórum árum og skoraði 60 mörk í 154 leikjum. Þá lék hann sína fyrstu landsleiki fyrir Brasilíu í kringum Copa America í sumar.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert