Gleðifréttir fyrir United

Bruno Fernandes heldur kyrru fyrir hjá Manchester United.
Bruno Fernandes heldur kyrru fyrir hjá Manchester United. AFP/Ben Stansall

Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við félagið. Gildir samningurinn til næstu þriggja ára, til sumarsins 2027.

Fernandes er 29 ára gamall og hefur leikið með Man. United frá því í janúar árið 2020. Hann var gerður að fyrirliða fyrir ári síðan og vann liðið ensku bikarkeppnina á fyrsta tímabili Fernandes með fyrirliðabandið.

Í samtali við heimasíðu Man. United kvaðst hann hæstánægður með að hafa skrifað undir nýjan samning og liti björtum augum til framtíðar þar sem ljóst væri að félagið stefndi að því að halda áfram að vinna titla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert