Arteta: Kann ég vel við sjálfan mig?

Mikel Arteta er knattspyrnustjóri Arsenal.
Mikel Arteta er knattspyrnustjóri Arsenal. AFP/Patrick T. Fallon

Fréttamaður sló á létta strengi á blaðamannafundi Mikel Arteta, knattspyrnustjóra Arsenal, fyrir fyrsta leik liðsins á tímabilinu í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu gegn Wolves á heimavelli í Lundúnum á morgun. 

Arsenal hefur lengi verið orðað við Spánverjann Mikel Merino sem heitir sama nafni og Arteta. 

Blaðamaður spurði Arteta því: „Kann Mikel vel við Mikel?“

„Kann ég vel við sjálfan mig?“ svaraði Arteta á léttu nótunum. 

Arteta bætti síðan við að hann gæti ekki talað um aðra leikmenn á meðan þeir spila ekki fyrir Arsenal. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert