Enginn hefur skorað fleiri mörk en Egyptinn Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.
Liverpool heimsækir nýliða Ioswich í hádeginu á morgun en Salah gæti þar skorað sitt níunda mark í fyrstu umferð deildarinnar.
Hann hefur nú þegar skorað átta líkt og Alan Shearer, Frank Lampard og Wayne Rooney en getur eignað sér metið með marki á morgun.
Leikurinn hefst klukkan 11.30 og verður í beinni textalýsingu á mbl.is.