Einn nýliði í byrjunarliði United

Noussair Mazraoui hitar upp í kvöld.
Noussair Mazraoui hitar upp í kvöld. AFP/Darren Staples

Manchester United og Fulham mætast í upphafsleik ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á Old Trafford í Manchester klukkan 19.

Einn nýliði er í byrjunarliði United en bakvörðurinn Noussair Mazraoui, sem Manchester-félagið fékk frá Bayern München á dögunum, spilar sinn fyrsta leik á Englandi.

Matthijs de Ligt sem kom einnig frá Bayern byrjar á bekknum, eins og Joshua Zirkzee sem kom til United frá Bologna á Ítalíu í sumar.

Byrjunarlið Manchester United:

Mark: André Onana.

Vörn: Diogo Dalot, Harry Maguire, Lisandro Martínez, Noussair Mazraoui.

Miðja: Kobbie Mainoo, Mason Mount, Casemiro.

Sókn: Amad Diallo, Bruno Fernandes, Marcus Rashford.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert