Frá Aston Villa til nýliðanna

Cameron Archer í leik með Aston Villa.
Cameron Archer í leik með Aston Villa. AFP/Jason Mowry

Enski knattspyrnumaðurinn Cameron Archer er genginn til liðs við Southampton. 

Hann kemur til félagsins frá Aston Villa en Southampton, sem er nýliði í ensku úrvalsdeildinni, kaupi framherjann á 15 milljónir punda. 

Archer skrifar undir fjögurra ára samning hjá Southampton en liðið mætir Newcastle á útivelli í fyrsta leik tímabilsins á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert