Frá Lundúnum til meistaranna

Divin Mubama í leik með U20 ára landsliði Englands.
Divin Mubama í leik með U20 ára landsliði Englands. Ljósmynd/West Ham

Englandsmeistarar Manchester City hafa gengið frá samningi við hinn 19 ára gamla Divin Mubama en hann kemur til Manchester-félagsins frá West Ham.

Mubama, sem var samningslaus hjá West Ham, mun fyrst um sinn aðallega æfa og spila með varaliði City, en mun þó einnig æfa með aðalliðinu.

Framherjinn lék átta leiki með West Ham í ensku úrvalsdeildinni og 18 leiki í öllum keppnum og skoraði í þeim eitt mark. Þá hefur hann leikið með öllum yngri landsliðum Englands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert