Klopp verður á hliðarlínunni

Jürgen Klopp verður á hliðarlínunni hjá sínu gamla félagi.
Jürgen Klopp verður á hliðarlínunni hjá sínu gamla félagi. AFP/Ben Stansall

Jürgen Klopp, fyrrverandi knattspyrnustjóri Liverpool og Dortmund, verður á hliðarlínunni er Dortmund leikur sérstakan leik til að heiðra Pólverjana Lukasz Piszczek og Jakub Blaszczykowski sem léku lengi með þýska liðinu.

Fer leikurinn fram á Signal Iduna-vellinum, heimavelli Dortmund, en ekki er komin dagsetning fyrir leikinn enn þá eða hvaða leikmenn taka þátt. 

Klopp gerði Dortmund að Þýskalandsmeistara 2011 og aftur 2012. Voru pólsku leikmennirnir báðir í stóru hlutverki bæði tímabilin og því við hæfi að Klopp heiðri þá með nærveru sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert