Liðsfélagi Jóhanns til Tottenham

Wilson Odobert, t.h., fagnae marki ásamt Lyle Foster.
Wilson Odobert, t.h., fagnae marki ásamt Lyle Foster. AFP/Oli Scarff

Franski knattspyrnumaðurinn Wilson Odobert er á leiðinni til Tottenham. 

Enskir miðlar greina frá en Odobert gengur til liðs við félagið frá Burnley, þar sem Jóhann Berg Guðmundsson spilar. 

Odobert er 19 ára kantmaður. Tottenham mun greiða Burnley 25 milljónir punda fyrir leikmanninn en þá gætu fimm milljónir punda bæst við með árangurstengdum greiðslum. 

Odobert mun skrifa undir fimm ára samning hjá Tottenham. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert