Spánverjinn Rodri verður ekki með Manchester City gegn Chelsea í stórleik fyrstu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Stamford Bridge í Lundúnum á sunnudaginn.
Þetta staðfesti Pep Guardiola knattspyrnustjóri City á blaðamannafundi í dag.
„Hann er að æfa en ég veit ekki alveg stöðuna á honum. Við verðum að sjá til með framhaldið en það er enginn séns á að hann verði með á sunnudaginn,“ sagði Guardiola.
Rodri er einn af allra mikilvægustu mönnum Manchester City og verður áhugavert að sjá hvernig Guardiola stillir upp liðinu án hans.