Arne Slot sat fyrir svörum á sínum fyrsta blaðamannafundi fyrir leik í ensku úrvalsdeildinni sem knattspyrnustjóri karlaliðs Liverpool.
Slot tók við af geysivinsæla Þjóðverjanum Jürgen Klopp í sumar en Liverpool-liðið hefur spilað vel á undirbúningstímabilinu.
„Það var mikilvægt að fá að vera með liðinu á undirbúningstímabilinu. Við náðum að undirbúa okkur vel fyrir ensku úrvalsdeildina.
Við byrjum á að mæta nýliðum Ipswich sem hafa gert afskaplega vel.
Orkan í nýliðum er alltaf mikil, en mér var sagt að allir leikir í ensku deildinni séu orkumiklir og við búumst við engu öðru á morgun,“ sagði Slot.
Liverpool heimsækir Ipswich í hádeginu á morgun og verður leikurinn í beinni textalýsingu á mbl.is.