Verða mjög líklega áfram hjá United

Jadon Sancho verður að öllum líkindum áfram hjá Manchester United.
Jadon Sancho verður að öllum líkindum áfram hjá Manchester United. AFP/Jaco Kupferman

Knattspyrnumennirnir Jadon Sancho, Casemiro og Scott McTominay verða allir áfram hjá Manchester United. 

Enskir miðlar greina frá en eins og er verða þeir þrír leikmenn United á komandi tímabili. Sancho og McTominay hafa verið sterklega orðaðir frá félaginu. 

United mætir Fulham í upphafsleik ensku úrvalsdeildarinnar klukkan 19 í kvöld. Leikurinn verður í beinni textalýsingu á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert