Vondar fréttir fyrir Arnór og félaga

Sammie Szmodics er orðinn leikmaður Ipswich.
Sammie Szmodics er orðinn leikmaður Ipswich. Ljósmynd/Ipswich Town

Enska knattspyrnufélagið Ipswich, sem verður nýliði í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni, hefur gengið frá kaupum á framherjanum Sammie Szmodics frá Blackburn.

Szmodics var markahæsti leikmaður B-deildarinnar er hann gerði 27 mörk fyrir Blackburn á síðustu leiktíð. Hann er 28 ára og hefur einnig leikið með Peterborough, Bristol City og Colchester.

Ipswich greiðir um níu milljónir punda fyrir leikmanninn. Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson leikur með Blackburn.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert