Arsenal - Wolves sýndur beint á mbl.is

Declan Rice og liðsfélagar hans í Arsenal fá Wolves í …
Declan Rice og liðsfélagar hans í Arsenal fá Wolves í heimsókn. AFP/Benjamin Cremel

Leikur Arsenal og Wolves í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, sem fram fer á Emirates-vellinum í Lundúnum, verður sýndur beint hér á mbl.is í dag en hann hefst klukkan 14.

Útsendingin hefst klukkan 13.30 með upphitun á Símanum Sport og er leikurinn sýndur á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 14.

Arsenal endaði í 2. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð en Wolves hafnaði í 14. sætinu.

Smelltu hér til þess að horfa á leik Arsenal og Wolves í beinni útsendingu á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert