Ekki í hópnum hjá Liverpool og gæti verið á förum

Joe Gomez hefur spilað stórt hlutverk hjá Liverpool undanfarin ár.
Joe Gomez hefur spilað stórt hlutverk hjá Liverpool undanfarin ár. AFP/Paul Ellis

Englendingurinn Joe Gomez er ekki í leikmannahópi Liverpool sem heimsækir nýliða Ipswich í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu klukkan 11.30 í dag. 

Gomez hefur verið í stóru hlutverki hjá Liverpool undanfarin ár en hann gekk í raðir félagsins árið 2015. 

Hann hefur spilað 224 leiki en á enn eftir að skora mark. 

Að sögn Paul Joyce, sem sérhæfir sig í málum Liverpool, er Gomez ekki í leikmannahópnum þar sem hann skoðar þann möguleika að fara frá félaginu áður en glugginn lokar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert