Góð byrjun hjá Liverpool og Slot

Liverpool hafði betur gegn nýliðum Ipswich á útivelli, 2:0, í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.

Var leikurinn sá fyrsti hjá Liverpool í deildinni síðan Arne Slot tók við og nægði góður seinni hálfleikur til að ná í þrjú stig.

Liðunum gekk illa að skapa sér mjög gott færi í fyrri hálfleik en Ipswich fékk þó fleiri og betri færi, þrátt fyrir að Liverpool hafi verið meira með boltann.

Alexis Mac Allister reynir fyrirgjöf. Axel Tuanzebe verst.
Alexis Mac Allister reynir fyrirgjöf. Axel Tuanzebe verst. AFP/Henry Nicholls

Jacob Greaves fékk besta færi hálfleiksins er hann náði skalla af stuttu færi en Alisson í marki Liverpool var vel staðsettur. Omari Hutchinson fékk svo fínt færi en Alisson varði frá honum er Ipswich-maðurinn lét vaða utan teigs.

Hinum megin fékk Liverpool mikið af hornum en gekk illa að skapa sér opið færi. Trent Alexander-Arnold átti eina skot gestanna í hálfleiknum er hann skaut yfir rétt utan teigs í blálok hálfleiksins.

Diogo Jota úr Liverpool og Luke Woolfenden hjá Ipswich eigast …
Diogo Jota úr Liverpool og Luke Woolfenden hjá Ipswich eigast við í dag. AFP/Henry Nicholls

Var staðan í hálfleik því 0:0.

Liverpool var mun sterkari aðilinn í seinni hálfleik og eftir þunga og stanslausa pressu skoraði Diogo Jota loks fyrsta markið á 60. mínútu er hann lagði boltann í hornið í teignum eftir sendingu frá Mo Salah.

Ipswich leikur sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni í 22 …
Ipswich leikur sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni í 22 ár í dag. AFP/Henry Nicholls

Salah sá sjálfur um að gera annað markið fimm mínútum síðar. Hann slapp þá í gegn eftir sendingu frá Dominik Szoboszlai og lagði boltann undir Christian Walton í marki Ipswich.

Leikurinn róaðist nokkuð eftir markið, en Liverpool var líklegra til að bæta við en Ipswich að minnka muninn. Fleiri urðu mörkin þó ekki.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Vestri 0:0 KR opna
1. mín. Leikur hafinn
Arsenal 0:0 Wolves opna
1. mín. Leikur hafinn

Leiklýsing

Ipswich 0:2 Liverpool opna loka
90. mín. Ipswich varðist þessu tíunda horni Liverpool-manna vel. Bæði lið virðast búin að sætta sig við stöðuna.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert