Salah um Slot: Þurfum að aðlagast

Mohamed Salah skoraði og lagði upp í sigri Liverpool í …
Mohamed Salah skoraði og lagði upp í sigri Liverpool í dag. AFP/Henry Nicholls

Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, skoraði og lagði upp í 2:0 sigri liðsins gegn Ipswich í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. 

Í viðtali við TNT Sports eftir leik sagði Salah að það væri nokkuð öðruvísi að spila undir stjórn Arne Slot, nýja stjóra Liverpool, heldur en Jurgen Klopp, fyrrverandi stjóra liðsins.  

Þetta er nokkuð öðruvísi. Jurgen Klopp var hérna í átta ár, hann gaf allt í þetta, nú er kominn nýr stjóri og nýtt kerfi. Þetta er allt öðruvísi fyrir okkur alla, við þurfum að aðlagast,“ sagði Salah. 

Salah telur mikilvægt að setja ekki of mikla pressu á Slot. Liðið þurfi bara að spila fótbolta og njóta.   

 „Við þurfum ekki að setja meiri pressu á hann, við þurfum bara að spila fótbolta og njóta leikjanna okkar,“ sagði Salah.  

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert