Skotmark Arsenal ekki í leikmannahópnum

Mikel Merino.
Mikel Merino. AFP/Tobias Schwarz

Mikel Merino verður ekki í leikmannahópi Real Sociedad sem fær Rayo Vallecano í heimsókn í fyrstu umferð spænsku 1. deildarinnar á morgun. 

Merino hefur verið mikið orðaður við Arsenal en að sögn spænskra og enskra blaðamanna mun hann ganga til liðs við enska félagið áður en glugginn lokar. 

Imanol Alguacil þjálfari Real Sociedad viðurkenndi að Merino væri ekki í hópnum vegna þess að hann er í viðræðum við annað lið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert