Frá Tottenham í Leicester

Oliver Skipp í leik með Tottenham á undirbúningstímabilinu.
Oliver Skipp í leik með Tottenham á undirbúningstímabilinu. AFP/Anthony Wallace

Tottenham hefur samþykkt tilboð frá nýliðinum í Leicester um kaupin á enska miðjumanninum Oliver Skipp.  

Talið er að verðmiðinn sé 20 milljónir punda á Skipp, sem er 23 ára gamall. Hann mun fara í læknisskoðun hjá Leicester á morgun.  

Skipp er uppalinn í Tottenham og hefur leikið 106 leiki með félaginu.

Leicester og Tottenham mætast í lokaleik fyrstu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert