Má fara frá Chelsea

Ben Chilwell má fara frá Chelsea í sumar.
Ben Chilwell má fara frá Chelsea í sumar. AFP/Ben Stansall

Enska knattspyrnumanninum Ben Chilwell er frjálst að fara frá Chelsea í sumar. Þetta hefur Enzo Maresca, stjóri liðsins, staðfest.  

Chelsea hefur sótt 10 leikmenn í sumar og er leikmannahópurinn samansettur af 43 leikmönnum. Maresca er ekki viss um að Chilwell fái margar mínútur í þessum stóra hópi. 

„Það er alveg ljóst, ég elska hvernig hann spilar en vandamálið er að hann er í erfiðleikum með að finna sína bestu stöðu, sagði Maresca um Chilwell á blaðamannafundi.  

Chelsea mætir Manchester City klukkan 15:30 í dag í ensku úrvalsdeildinni.  

Þegar leikmenn æfa á hverjum degi og fá ekki mínútur, það er ekki gott fyrir þá og ekki gott fyrir mig þar sem ég þarf að taka ákvörðunina. Það er örugglega best að fara og fá mínútur annars staðar. Félagaskiptaglugginn er opinn svo við sjáum hvað gerist, sagði Maresca. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert