Segir að Osimhen vilji koma til Chelsea

John Obi Mikel telur að Victor Osimhen vilji koma til …
John Obi Mikel telur að Victor Osimhen vilji koma til Chelsea. AFP/Tiziana Fabi

John Obi Mikel, fyrrverandi leikmaður Chelsea, segir að landi sinn Victor Osimhen, framherji Napoli, vilji ganga í raðir Chelsea í sumar.  

„Félagið, held ég, vill fá alvör markaskorara og það er engin vanvirðing við Nicolas Jackson. Hann stóð sig vel á síðasta tímabili en ég held að við þurfum meira, sagði Mikel við Bein Sport.  

Mikel hefur verið í sambandi við Osimhen í gegnum SMS-skilaboð og reynt að ýta honum að Chelsea. 

„Við höfum sent á milli okkar nokkur SMS-skilaboð hér og þar. Ég hef sagt honum hversu gott félagið er og hvað það er frábær staður til að bæta sig 

Hann hefur áhuga sem er spennandi og vill koma til félagsins. Chelsea er stórt félag og hann myndi vilja feta í fótspor annarra Nígeríumanna og spila fyrir Chelsea. 

Mikel telur einfaldast fyrir Chelsea og Napoli að skiptast á Osimhen og Romelu Lukaku, framherja Chelsea. 

„Ég held að það sé 60% líkur á að Osimhen komi. Ég tel að þetta ættu að vera bein skipti á milli þar sem Napoli vill fá Lukaku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert