Skoraði og fagnaði með stuðningsmönnum (myndskeið)

Willum Þór Willumsson
Willum Þór Willumsson Ljósmynd/Birmingham

Willum Þór Willumsson landsliðsmaður í fótbolta byrjar vel hjá Birmingham City í C-deild Englands.

Willum skoraði í útisigri liðsins á Wycombe í gær og fagnaði með stuðningsmönnum í stúkunni eftir markið.

Íslenski landsliðsmaðurinn er greinilega vinsæll hjá nýja liði sínu, því stuðningsmenn Birmingham vildu ólmir fagna með Willum.

Myndskeið af fögnuði Willums má sjá hér fyrir neðan.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert