Toney ekki með Brentford í fyrsta leik

Ivan Toney er ekki í hóp Brentford í dag.
Ivan Toney er ekki í hóp Brentford í dag. AFP/Darren Staples

Enski knattspyrnumaðurinn Ivan Toney er ekki í hóp Brentford í fyrsta leik liðsins á tímabilinu gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni.  

Toney hefur verið orðaður við lið víða í heiminum, meðal annars Al-Ahli frá Sádi-Arabíu. 

„Það er ýmislegt í gangi með Ivan [Toney], það er áhugi á félagaskiptamarkaðnum. Vegna þess höfum við ákveðið að hafa hann ekki í hóp í dag, sagði Thomas Frank, stjóri Brentford í viðtali við Sky Sports fyrir leik.  

Frank sagðist ekki vita hvort við myndum sjá Toney aftur í Brentford treyju. 

„Hver veit? Það er áhugi en það er ekkert nálægt því að ganga í gegn,“ sagði Frank. 

Brentford er með 1:0 forystu gegn Crystal Palace þegar þessi frétt er skrifuð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert