Ekki með vegna skorts á atvinnuleyfi

Wilson Odobert (t.h.) fagnar marki í leik með Burnley á …
Wilson Odobert (t.h.) fagnar marki í leik með Burnley á síðasta tímabili. AFP/Oli Scarff

Franski kantmaðurinn Wilson Odobert er ekki í leikmannahópi Tottenham Hotspur fyrir leik liðsins gegn Leicester City í lokaleik fyrstu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld.

Odobert var keyptur til Tottenham frá Burnley fyrir helgi og var reiknað með því að hann gæti tekið þátt í leik kvöldsins.

Af því verður hins vegar ekki þar sem BBC Sport greinir frá því að Odobert sé ekki kominn með atvinnuleyfi.

Þarf hinn 19 ára gamli Odobert því að bíða enn um sinn eftir því að spila sinn fyrsta leik fyrir Tottenham.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert