Gamla brýnið hefur engu gleymt (myndskeið)

Hinn 37 ára gamli Jamie Vardy skoraði jöfnunarmark Leicester City þegar liðið fékk Tottenham Hotspur í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Urðu lokatölur 1:1.

Pedro Porro kom Tottenham yfir með góðu skallamarki í fyrri hálfleik.

Vardy mátti ekki minni maður vera og jafnaði metin með öðru fyrirtaks skallamarki í síðari hálfleik.

Mörkin tvö ásamt öllu því helsta sem gerðist í leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert