Vardy tryggði Leicester stig

Jamie Vardy jafnar metin fyrir Leicester City í kvöld.
Jamie Vardy jafnar metin fyrir Leicester City í kvöld. AFP/Darren Staples

Nýliðar Leicester City og Tottenham Hotspur skildu jöfn, 1:1, þegar liðin áttust við í lokaleik fyrstu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla í kvöld.

Tottenham stýrði ferðinni lengi vel en tókst ekki að knýja fram sigur. Undir lokin gerði Leicester sig svo líklegt til þess að taka öll þrjú stigin en sættust liðin að lokum á jafnan hlut.

Pedro Porro kom gestunum frá Tottenham í forystu eftir tæplega hálftíma leik með góðum skalla eftir sendingu James Maddison inn í vítateiginn.

Gamla brýnið Jamie Vardy jafnaði hins vegar metin fyrir Leicester eftir tæplega klukkutíma leik þegar hann skoraði með föstum skalla af stuttu færi eftir góða fyrirgjöf Abdul Fatawu frá hægri.

Vardy er 37 ára gamall og hefur skorað 127 mörk í ensku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert