Zirkzee í góðum félagskap (myndskeið)

Hollendingurinn Joshua Zirkzee skoraði sigurmark Manchester United gegn Fulham í sínum fyrsta leik fyrir félagið á föstudagskvöld. Hann fetar í fótspor tveggja landa sinna.

Zirkzee er í góðum félagskap ásamt Ruud van Nistelrooy og Robin van Persie en allir hafa þeir skorað í fyrsta leik fyrir Manchesterliðið. Þeir síðarnefndu eru í miklum metum hjá stuðningsmönnum United sem bera miklar vonir við Zirkzee.

Myndband af mörkum van Nistelrooy og van Persie má sjá hér fyrir ofan en mark van Persie var einkar glæsilegt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert