Frá Chelsea til nýliðana

Albanski framherjinn Armando Broja.
Albanski framherjinn Armando Broja. AFP/Ben Stansall

Albanski knattspyrnumaðurinn Armando Broja er á leiðinni til Ipswich á láni frá stórfélaginu Chelsea. 

Enskir miðlar greina frá en Broja mun þá alfarið ganga til liðs við Ipswich fyrir 30 milljónir punda ef liðið heldur sér uppi í ensku úrvalsdeildinni. 

Broja er 22 ára gamall framherji sem var í akademíu Chelsea. Þá hefur hann leikið 37 leiki fyrir félagið en skorað aðeins þrjú mörk. 

Hann á að baki 23 landsleiki fyrir Albaníu þar sem hann hefur skorað fimm mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert