Draumafrumraun í leikhúsi draumanna (myndskeið)

Hollenski sóknarmaðurinn Joshua Zirkzee átti sannkallaða draumafrumraun í fyrsta leik sínum fyrir Manchester United er hann skoraði sigurmarkið í 1:0-sigri á Fulham í upphafsleik ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á föstudagskvöld.

Zirkzee kom inn á sem varamaður og lét strax vel að sér kveða á Old Trafford, leikhúsi draumanna.

Allar snertingar Hollendingsins í leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert