Frá Birmingham til Nottingham

Álex Moreno í baráttunni í leik gegn Columbus Crew.
Álex Moreno í baráttunni í leik gegn Columbus Crew. AFO/Jason Mowry

Spænski knattspyrnumaðurinn Álex Moreno er á leiðinni til Nottingham Forest á lánssamningi frá Aston Villa. 

Enski miðlar greina frá en það verður kaupákvæði í samningi Moreno en hann lék 48 leiki fyrir Aston Villa á einu og hálfu ári hjá félaginu. 

Síðan að Ian Maatsen kom til Villa hefur hlutverk Spánverjans, sem er 31 árs gamall, minnkað. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert