Franskur landsliðsmaður til Liverpool?

Adrien Rabiot er án félags þessa stundina.
Adrien Rabiot er án félags þessa stundina. AFP/Marco Bertorello

Franski knattspyrnumaðurinn Adrien Rabiot er á óskalista enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool.

Það er franski miðillinn L'Equipe sem greinir frá þessu en Rabiot, sem er 29 ára gamall, er án félags þessa stundina eftir að samningur hans við Juventus rann út fyrr í sumar.

Rabiot er uppalinn hjá PArís SG í Fakklandi en gekk til liðs við Juventus á frjálsri sölu frá franska félaginu sumarið 2019.

Miðjumaðurinn er lykilmaður í franska landsliðinu og á að baki 48 A-landsleiki en Arne Slot, nýráðinn stjóri Liverpool, hefur ekki styrkt leikmannahópinn enn sem komið er.

Félagaskiptaglugganum á Englandi verður lokað um mánaðarmótin og hefur Liverpool því ennþá góðan tíma til þess að styrkja hópinn fyrir komandi átök.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert