Heimsmeistarinn framlengir við Villa

Emiliano Martínez verður hjá Aston Villa fram á gamals aldur.
Emiliano Martínez verður hjá Aston Villa fram á gamals aldur. AFP/Justin Tallis

Knattspyrnumarkvörðurinn Emiliano Martínez, markvörður heimsmeistara Argentínu og Aston Villa, hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við enska félagið.

Martínez, sem er 31 árs, er nú samningsbundinn til sumarsins 2029.

Hann hefur leikið með Villa frá árinu 2020 og hefur leikið 160 leiki fyrir liðið í öllum keppnum.

Villa komst í Meistaradeild Evrópu með því að hafna í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili en þar lék Martínez síðast fyrir tíu árum með Arsenal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert