Leikmaður Liverpool í D-deildina

Rhys Williams lék þó nokkra leiki með Liverpool í ensku …
Rhys Williams lék þó nokkra leiki með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. AFP

Enski knattspyrnumaðurinn Rhys Williams er farinn frá Liverpool á láni til enska D-deildarfélagsins Morecambe. 

Lánssamningurinn gildir þangað til í janúar en Williams er 23 ára gamall miðvörður. 

Williams er uppalinn hjá Liverpool en hann lék níu leiki fyrir félagið tímabilið 2020/21 þegar að mikil meiðsli hrjáðu herbúðir Bítlaborgarliðsins. 

Liverpool komst í Meistaradeildina það tímabil en síðan þá hefur Williams farið á láni til þó nokkurra félaga. Síðast lék hann með Port Vale í ensku C-deildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert