Ólympíufari í ensku úrvalsdeildina

Rayan Cherki var með Frakklandi á Ólympíuleikunum.
Rayan Cherki var með Frakklandi á Ólympíuleikunum. AFP/Nicolas Tucat

Franski knattspyrnumaðurinn Rayan Cherki er á leiðinni til enska félagsins Fulham. 

SkySports greinir frá en Cherki, sem er nýorðinn 21 árs, kemur til Fulham frá uppeldisfélaginu Lyon í heimalandinu. 

Hann lék 141 leik fyrir Lyon og skoraði 17 mörk fyrir aðallið Lyon. 

Fulham mun greiða Lyon 13 milljónir punda fyrir Frakkann en hann vann silfur með franska landsliðinu á Ólympíuleikunum í París fyrr í sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert