Rólyndisviðbrögð við fyrsta markinu (myndskeið)

Fagnaðarlæti hollenska knattspyrnustjórans Arne Slot er Liverpool skoraði fyrsta markið í ensku úrvalsdeildinni undir hans stjórn voru með lágstemmdara móti.

Diogo Jota skoraði fyrra mark Liverpool í 2:0-sigri á Ipswich Town í fyrstu umferð deildarinnar um síðustu helgi og var fylgst sérstaklega með Slot á hliðarlínunni þegar portúgalski sóknarmaðurinn skoraði.

Í spilaranum hér fyrir ofan má sjá viðbrögð Slots við marki Jota. Mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert