Liverpool selur enn einn

Van den Berg í baráttu við Gabriel Jesus á undirbúningstímabilinu.
Van den Berg í baráttu við Gabriel Jesus á undirbúningstímabilinu. AFP/Drew Hallowell

Sepp van den Berg er á förum frá Liverpool til Brentford en hann fylgir Fabio Carvalho til Lundúna. Van den Berg verður þriðji leikmaðurinn sem Liverpool selur á einni viku en félagið hefur enn ekki keypt leikmann í sumar.

Van den Berg er 23 ára gamall og hefur verið á mála hjá Liverpool í fimm ár. Varnarmaðurinn lék fyrir Mainz á lánssamningi á síðustu leiktíð en áður var hann lánaður til Schalke og Preston North End.

Brentford er talið greiða 25 milljónir punda fyrir leikmanninn sem vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína í Þýskalandi á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert