Norðmaðurinn til Lundúna

Sander Berge er mættur til Lundúna.
Sander Berge er mættur til Lundúna. Ljósmynd/Fulham FC

Norski miðjumaðurinn Sander Berge hefur skrifað undir fimm ára samning við Fulham en félagið kaupir hann frá Burnley.

Berge lék aðeins í eitt ár fyrir Burnley en áður hafði hann spilað í þrjú ár á Englandi fyrir Sheffield United.

Berge er ætlað að fylla skarð Portúgalans Palinha sem fór frá Fulham til Bayern München í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert