Arne Slot hefur engar áhyggjur

Arne Slot á hliðarlínunni.
Arne Slot á hliðarlínunni. AFP/Henry Nicholls

Arne Slot, knattspyrnustjóri karlaliðs Liverpool, segist ekki hafa áhyggjur af því að félagið hafi ekki enn fengið leikmann til sín í sumar. 

Liverpool á enn eftir að kaupa leikmann en markvörður Giorgi Mamardashvili hefur verið sterklega orðaður við félagið. 

Á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Brentford á sunnudaginn sagði Slot að hann hafi ekki áhyggjur af því að enginn sé enn kominn. 

„Ég hef engar áhyggjur. Ég fékk upp í hendurnar mjög gott lið með mikið af ungum leikmönnum. Þeir geta orðið enn betri. 

Við reynum okkar allra besta að bæta þá. Um síðustu helgi sýndu þeir af hverju við treystum þeim og vonandi gera þeir það aftur á sunnudaginn,“ sagði Slot. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert