Gündogan kominn heim (myndskeið)

Illkay Gündogan.
Illkay Gündogan. AFP/Marco Bertorello

Þýski knattspyrnumaðurinn Illkay Gündogan er orðinn leikmaður Manchester City á nýjan leik. 

Gündogan, sem er 33 ára gamall, kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Barcelona og skrifar undir eins árs samning. 

Þjóðverjinn yfirgaf City með stæl sumarið 2023 eftir að liðið hafði unnið þrennuna. Þá var hann fyrirliði Manchester-félagsins. 

Hann gekk fyrst í raðir City árið 2016 og hefur hingað til unnið 12 bikara. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert