Hélt námskeið á Íslandi og snýr aftur í ensku úrvalsdeildina

Asmir Begovic.
Asmir Begovic. AFP

Knattspyrnumarkvörðurinn Asmir Begovic er genginn til liðs við Everton.

Begovic, sem er 37 ára gamall Bosníumaður, skrifar undir eins árs samning við Everton en hann var hjá félaginu á árunum 2021 til 2023. 

Begovic gerði garðinn frægan með Stoke á árunum 2010 til 2015 og eftir það lék hann með Chelsea og Bournemouth í ensku deildinni. 

Hann á að baki 63 landsleiki fyrir Bosníu. 

Þá hélt Begovic markvarðanámskeið hjá Fram í Úlfarsárdal fyrr í sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert