Ísraelsmaðurinn á förum frá Tottenham

Manor Solomon í leik með Tottenham.
Manor Solomon í leik með Tottenham. AFP/Justin Tallis

Ísraelski knattspyrnumaðurinn Manor Solomon er á förum frá Tottenham. 

Enskir miðlar greina frá en samkvæmt þeim vill Solomon vera áfram á Englandi. Tottenham hefur nú þegar hafnað tilboði Getafe í sóknarmanninn. 

Solomon gekk til liðs við Tottenham síðasta sumar eftir gott tímabil hjá Fulham. Hann var þó mikið meiddur á síðustu leiktíð og spilaði aðeins sex leiki fyrir Tottenham. 

Þá var hann ekki með ísraelska landsliðinu í undanúrslitum umspils Evrópumótsins í vor gegn Íslandi. Þar vann Ísland 4:1.

Hann var áður hjá Shaktar Donetsk í Úkraínu í þrjú ár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert