Heimkoma knattspyrnumannsins Illkay Gündogan í Manchester City kom sjálfum stjóranum Pep Guardiola á óvart.
Gündogan er mættur aftur til Manchester eftir árs fjarveru hjá Barcelona. Gündogan var lykilmaður hjá City frá 2016 til 2023 og var fyrirliði liðsins þegar það vann þrennuna 2023.
Pep Guardiola var mjög hissa þegar hann heyrði að það væri tækifæri að fá Gündogan aftur en hann hugsaði sig ekki tvisvar um.
„Þetta kom algjörlega á óvart. Ég þekki hann mjög vel en hann átti gott tímabil hjá Barcelona.
Um leið og tækifærið gast var enginn vafi á því hvort við ættum að taka hann til baka. Við erum afskaplega ánægðir að hann sé mættur aftur,“ sagði Guardiola á blaðamannafundi.