Óvænt á förum frá Liverpool?

Stefan Bajcetic gæti verið á förum frá Liverpool.
Stefan Bajcetic gæti verið á förum frá Liverpool. AFP/Drew Hallowell

Spánverjinn ungi Stefan Bajcetic gæti verið á förum frá enska knattspyrnufélaginu Liverpool áður en glugganum verður lokað. 

Telegraph greinir frá en samkvæmt miðlinum eru meiri líkur en minni að hann fari frá Liverpool. 

Bajcetic, sem er tvítugur, missti af nánast öllu síðasta tímabili en fyrir það hafði hann verið í þó nokkru hlutverki hjá liðinu þrátt fyrir ungan aldur. 

Margir bjuggust við því að hann yrði í stóru hlutverki hjá Liverpool undir Arne Slot, en svo virðist ekki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert