Stórkostleg tilþrif á Old Trafford (myndskeið)

André Onana átti eina af bestu markvörslum fyrstu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla þegar hann hélt marki sínu hreinu í 1:0-sigri Manchester United á Fulham á Old Trafford fyrir viku síðan.

Onana sá við Kenny Tete sem náði góðu skoti fyrir utan teig sem stefndi upp í samskeytin.

Bernd Leno í marki Fulham vann sömuleiðis vel fyrir kaupi sínu og varði frá Bruno Fernandes í sannkölluðu dauðafæri.

Bestu markvörslur fyrstu umferðarinnar má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert