Útilokar ekki fleiri kaup

Mikel Arteta á hliðarlínunni gegn Wolves.
Mikel Arteta á hliðarlínunni gegn Wolves. AFP/Adrian Dennis

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri karlaliðs Arsenal, útilokar ekki að félagið kaupi fleiri leikmenn það sem eftir lifir sumargluggans. 

Arsenal hefur þegar fengið til liðs við sig Ítalann Ricardo Calafiori og samkvæmt áreiðanlegustu heimildum er Spánverjinn Mikel Merino einnig á leiðinni til félagsins, þrátt fyrir að Arteta hafi haft hljótt um það á blaðamannafundi dagsins. 

Spurður hvort fleiri leikmenn gætu komið til félagsins á síðustu dögum sumargluggans vildi Arteta ekki útiloka neitt. 

„Það getur allt gerst, á báða vegu. Við verðum að vera tilbúin að fá leikmenn og selja,“ sagði Arteta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert