Arnór kom inn á og skoraði sigurmarkið

Arnór Sigurðsson skoraði sigurmark Blackburn í dag.
Arnór Sigurðsson skoraði sigurmark Blackburn í dag. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Arnór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, reyndist hetja Blackburn Rovers þegar hann kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið í 2:1-sigri á Oxford United í ensku B-deildinni í dag.

Staðan var 1:1 í hálfleik og kom Arnór inn á sem varamaður á 76. mínútu.

Sjö mínútum síðar skoraði Skagamaðurinn sigurmarkið og sá til þess að Blackburn fór upp í þriðja sætið þar sem liðið er með sjö stig eftir þrjá leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert